Calendula Caress (Morgunfrú)

kr.6.400kr.9.900

Fersk blóm morgunfrúnnar eru handtýnd og blönduð við náttúrulega ólívuolíu með E-vítamínum. Bætt er við seyði úr morgunfrúnni og hreinar jurtaolíur sem róa og auka lækningamátt morgunfrúnnar: Sandalwood, Vanilla, Chamomile, Marjoram og Lavender. Einnig er blandað við ilmkjarnaolíunum Mariposa Lily, Star Tulip og Calendula sem fylla hjartað af móðurkærleik og innsæi.

Hreinsa
Vörunúmer: Á ekki við Flokkur:

Lýsing

Notkun:

  • Notuð allt árið til þess að halda húðinni endurnærðri og einnig til að tengjast krafti jarðarinnar og alheimsorkunni.
  • Notuð á erta og brennda húð. Hitabakstrar eru settir á sár sem eru lengi að gróa og opin sár.
  • Sérstaklega góð fyrir börn með viðkvæma húð.
  • Kemur á jafnvægi á það kvenlega: fyrir mæður með barn á brjósti er olían nudduð á brjóstin, sem smyrsli á óléttubumbuna, kemur jafnvægi á tíðahringinn.
  • Bakstrar eru settir yfir þau líkamssvæði þar sem eru bólgur í líffærum, eins og yfir líffæri meltingarkerfisins.
  • Bakstrar eru settir yfir þau líkamssvæði sem eru bólgin, sérstaklega svæði sogæðakerfisins.
  • Olían er notuð í böð og nudd sem eru mjög slakandi og róa pirring og streitu.
  • Borin á hjarta- og hálsstöð til að veita víðsýni, skilning, meðvitund og sköpunarkraft sem flæða inn um þessar stöðvar og út í alheiminn.

Aðferðir til notkunar:
Nudd: Olíunni er nuddað taktbundið frá útlimum í áttina að hjartanu. Notuð á allan líkamann eða þau svæði sem þurfa sérstaklega á heilunarkröftum morgunfrúnnar að halda.

Bað: Olían er sérstaklega góð fyrir húðina og mjög slakandi. Allt að 30 ml af olíunni er blandað út í heitt bað. Fyrir erta eða brennda húð er bökunarsóda einnig bætt út í baðið. Fyrir þá sem vilja er gott að dreifa blöðum af rósum, hjólkrónum, liljum, lofnarblómum eða fjólum út í baðið. Liggið í baðinu í 20 mín. og finnið mildan kraft jarðarinnar styrkja líkamann.

Hitabakstrar: Olíunni er blandað við létthitað ólívuolíu. Mjúkum klút er dýft ofan í blönduna og settur á líkamssvæðið. Hitapoki er settur ofan á til þess að auka áhrifin.

Orkustöðvar: Olían er borin á hjarta- og hálsstöðina til að fylla okkur af kærleik og bæta tjáninguna. Það hjálpar mikið að fara með ljóð eða bæn á meðan olían er borin á líkamann. Farið með ljóðið eða bænina upphátt og látið hana óma í hjarta ykkar og sál.

Frekari upplýsingar

Magn

60ml, 120ml

Vefhönnun © Vefsala.com fyrir Nýjaland