Chamo-Mild Calm (Kamilla)

kr.6.400kr.9.900

Ný viðbót við líkamsolíurnar. Fersk blóm kamillunnar er blandað við lífræna olívuolíu. Einnig er bætt við blómadropum úr kamillu, Star of Bethlehem og Mariposa Lily til að stuðla að tilfinningalegu jafnvægi og endurnæra sálina. California Valerian, Lavender og Magnolia stuðla að djúpri slökun, Lilac og Sweet Alyssum skýra og hreinsa hugann; og Pink Angel’s Trumpet hjálpar til við að losa spennu í líkamanum og tengjast almættinu. Ilmkjarnaolíum úr Sandalwood og Lavender er bætt við til þess að stuðla að jafnvægi í taugakerfinu; Frankincense og Cistus hafa jákvæð áhrif á öndunarfærin og dýpka öndun; Spruce og Cedarwood gefa aukinn lífskraft og jarðtengingu; og Vanilla og Ylang Ylang gefa yl í hjartað.

Hreinsa
Vörunúmer: Á ekki við Flokkur:

Lýsing

Notkun:

  • Við kvíða, óróleika og eirðarleysi: olíunni nuddað á allt andlit, eða enni og gagnaugu, eða í lófana. Augunum er lokað ljúflega og andað djúpt inn í nokkrar mínútur. Slökun í baði: nokkrum ml af olíunni bætt út í bað fyrir svefn til þess að stuðla að djúpri slökun.
    Fyrir ungabörn: við tanntöku, börn sem eru óróleg eða gráta mikið – olíunni nuddað á kvið barnins eða annars staðar á líkama þar sem eru óþægindi.
    Kviðsvæði: olíunni nuddað með hringlaga hreyfingum á kvið t.d. vegna meltingartruflana, útþanins kviðs eða almennri spennu yfir solar plexus svæðinu.
    Fyrir konur: við krömpum, skapsveiflum eða annarra óþæginda vegna blæðinga.
    Bólgur í líkamanum: olíunni nuddað oft á hvaða svæði líkamans sem er með krónískar bólgur, stuðlar að jafnvægi.
    Djúpslökun líkama og sálar: olíunni nuddað á allan líkamann.
    Gæludýr: hefur einnig róandi og slakandi áhrif á dýr.

Frekari upplýsingar

Magn

60ml, 120ml

Vefhönnun © Vefsala.com fyrir Nýjaland