Nýjaland býður upp á skemmtileg og þroskandi heilunarnámskeið fyrir börn á aldrinum 6-10 ára.
Um námskeiðið:
Námskeiðið er 6 daga námskeið sem kennt er á sumrin og er ætlað börnum frá 6-10 ára.
Það sem kennt er:
Vatnið, hvers vegna er það mikilvægt.
Litir, hvaða áhrif þeir hafa.
Hugleiðslur
Blómadropar
Kristalar og steinar
Falleg hugsun
Fyrirgefningin
Orkublikið og orkustöðvar

Ávinningur og markmið:
- Kenna börnum aðferðir til þess að ná meiri stjórn á næmleika sínum.
- Stuðla að sjálfsheilun.
- Kenna heilbrigða hugsun gagnvart sjálfum sér og öðrum.
- Að finna fyrir kærleika, gleði og frið.

Fyrir hverja:
- Öll börn á aldrinum 6-10 ára.
- Fyrir börn sem eru t.d. myrkfælin, sofa illa, skortir sjálfstraust, eiga erfitt með einbeitingu eða líður ekki nógu vel á líkama eða sál.
- Fyrir börn sem eru með ofur næmleika.

-
Börn í Heilunaskóla Nýjalands 2014
Námsgögn: Mappa.
Hvar: Kennsla fer fram í Nýjalandi, Eiðistorgi 13 á 2. hæð.
Hvenær: Sjá valmynd “Á döfinni/næstu námskeið”.
Verð: 17.000 kr.
Kennari: Súsanna María Kristinsdóttir hjúkrunarnemi og Stefanía S. Ólafsdóttir, græðari. “Ég bý yfir 30 ára reynslu sem ég hlakka til að miðla til þín”.
Aðrar upplýsingar:
Innifalið í námskeiðinu er kennsla, blómadropar og steinar. Kennt er frá 09-12.
Skráning er hafin og þú ert hjartanlega velkomin
Hafðu samband í síma 517-4290 og 868-2880.
Dagskrá:
Dagur 1: Vatnið
- Kynning nemendur og kennarar
- Hressing
- Hugleiðsla. Vatnið.
- Teikning
- Matarhlé ( Úti eða Inni)
- Útivist sem tengist vatninu, t.d. fjaran osfr.
Dagur 2: Litir
- Litir hvað þýða þeir.
- Hressing
- Hugleiðsla. Litir.
- Teikning
- Matarhlé ( Úti eða Inni)
- Útivist sem tengist litum
Dagur 3: Blómadropar
- Fjallað um Blómadropa
- Hressing
- Hugleiðsla: Blómadropar.
- Teikning
- Matarhlé ( Úti eða Inni)
- Útivist, blómadropar búnir til
Dagur 4: Kristalar
- Hvernig getum við notað kristala.
- Hressing
- Hugleiðsla. Kristalar.
- Teikning
- Matarhlé ( Úti eða Inni)
- Útivist. Kristalar hreinsaðir
Dagur 5: Falleg hugsun
- Hvers vegna að vera með fallegar hugsanir.
- Hressing
- Hugleiðsla. Garðurinn. Sagan lesin um Pál Ágúst og Súsönnu.
- Teikning
- Matarhlé ( Úti eða Inni)
- Útivist. Heilað með fallegri hugsun.
Dagur 6: Fyrirgefningin
- Hvers vegna að fyrirgefa.
- Hressing
- Hugleiðsla. Fyrirgefning.
- Teikning
- Matarhlé ( Úti eða Inni)
- Útivist